Myrt til að nauðga til að útrýma. Ísrael - Palestína.

Að hóta er ekki það sama og gera EN ef hótun er ekki fylgt eftir hættir fólk að taka mark á henni. Þar af leiðandi er þetta engin lausn sem Mordechai Kedar dregur fram sem staðreynd; eða hvers konar lausn er það á stríði milli 2ja þjóða ef konu annarrar þjóðarinnar er nauðgað af karli hinnar ? Það liggur í hlutarins eðli að það byði upp á hefndaraðgerðir => stríðinu lyki ekki fyrr en önnur þjóðin lægi í valnum.

Í því ljósi má ætla að LÍKLEGT sé að orð Kedars gefi hermönnum og ísraelskum borgurum réttlætingu til að nauðga konum því þannig "ná þeir markmiðum Ísraels" svo vitnað sé til orða forseta, forsætisráðherra Ísraels og annarra talsmanna Ísraela. Markmið þeirra eru ansi hreint skýr:

Stöðva árásir Hamasliða (lesist; útrýma Palestínumönnum) halda þeim í herkvínni og koma í veg fyrir að þeir geti sótt vopn (lesist; vistir, lyf o.fl. lífsnauðsynlegt sem komast þarf landleiðina) og endurheimta Ísrael fyrir Ísraela (lesist; hernema Gaza).Allt í nafni trúar hinnar útvöldu þjóðar á guðinn sem valdi þá til að yrkja þetta guðs útvalda land!

Heimildir:

 

http://www.dv.is/frettir/2014/7/24/israelskur-fraedimadur-segir-naudganir-einu-leidina-til-ad-stodva-hrydjuverkamenn/

http://www.mbl.is/frettir/search/?qs=%C3%ADsrael+Palest%C3%ADna&period=0&category=&sort=1&submit=Leita 

 

Biblían, gamla testamentið, hin heilaga bók kristinna.

Torah, hin heilaga bók gyðinga.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Prófessorinn benti nú einfaldlega á hefðir og reglur arabanna sem eiga í hlut. Ef hægt væri að stöðva þá við sjálfsvígsárásir áður en þeir fara að heiman, væri vitneskjan um a'ð heiðri móður hans eða systur og þar meðfjölskyldunnar lægi á hans herðum. Hann vísar í mentalitetið ekki að leggja þetta til í alvöru. Það hlýtur hverjum að vera ljóst. Hverjir heldur þú að fngist til þess að fara og framkvæma slíka hefnd ? ?

Annars er fólki hollt að líta hér á nokkrar upprifjanir til mótvægis við hálfsannleikskokkteilinn sem var í Íslandi í dag í gærkvöldi. Hér eru örstutt myndbönd til að líta á svo menn nái áttum að ekki er allt sem sýnist og fjölmiðlar hampa þegar læknirinn Hauksson krefst þess.

Höldum okkur við heilræði Ara Þorgilssonar sem hann gaf okkur fyrir margt löngu.

.

.

https://www.youtube.com/watch?v=8EDW88CBo-8

https://www.youtube.com/watch?v=g_3A6_qSBBQ

https://www.youtube.com/watch?v=XGYxLWUKwWo

https://www.youtube.com/watch?v=qIRJO9TaaOI

https://www.youtube.com/watch?v=QAuBc_cbXo0

https://www.youtube.com/watch?v=5jjOOpEvMHA

https://www.youtube.com/watch?v=W9ReF4UUa4E

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.7.2014 kl. 16:15

2 Smámynd: Anna Lísa Baldursdóttir

Vissulega vísar prófesorinn til mentalitets þegar hann bendir á þessa "lausn" en það er ótrúlegur naívismi að gera ráð fyrir að hermennirnir sem um ræðir hafi eitthvern möguleika á að taka sjálfstæðar ákvarðanir og neita að nauðga sé þeim það fyrirskipað. Og sé þeim ekki beinlínis sagt að beita kynferðislegu ofbeldi, fyrir utan annars konar ofbeldi, leyfi ég mér að efast um að þeim sé bannað það.

Öllum ætti að vera ljóst að nauðganir hafa fylgt, fylgja og munu því miður að líkindum fylgja stríðandi fólki enda gagnast þær vel til að aflífa konur, o.fl., þó þær séu ekki myrtar bókstaflega, og eyðileggja þannig heilu samfélögin innan frá, ekki síst múslimsk samfélög en þau skella skömminni á þolandann, gleymum því ekki.

Tilgangur minn var annars fyrstur og fremstur sá með þessum skrifum að benda á hversu einsleit umræðan er í Ísraels þágu. 

Ísraelsbúar byggja stríðsrekstur sinn ekki síst á trú sinni á því að þeir séu hin útvalda þjóð í guðs útvalda landi og hafa til þess fulltyngi þjóðanna sem lönduðu þeim á þessum jarðarskika í lok seinni heimstyrjaldarinn í óþökk arabanna sem fyrir voru á þessum skika. Og svo mætti reyndar lengi telja aftur í tímann en einhver verður að fara að vægja, venjulega sá sem vitið hefur meira en því miður tel ég líklegra að það verði sá sem hefur minna af aðgengilegum gjaldmiðlum.

Lifum í kærleiksríku lýðræði en ekki ofbeldisfullri guðfræði!

Anna Lísa Baldursdóttir, 28.7.2014 kl. 15:35

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þú fellur í gryfjuna á marga vegu.

Ekki gleyma því heldur að fréttamenn á fjölmiðlum skrifa fréttirnar og segja þær þannig að sem mest krydd verði við það hvernig þeir matreiða ummæli prófessorsins ofan í okkur sauðsvartan almúgann sem ekki hlustuðum á eða lásum skrifin sjálf í samhengi því sem þau voru sögð.

Þá er einnig ljóst að þú leist ekki á eitt einasta af tilvísuðum myndböndum sem hefðu sparað þér staðlausa sleggjudómana um spjöld sögunnar og ofbeldisfulla guðfræði og það hverjir það eru og voru sem bjuggu í Ísrael og eins um þau miklu landsvæði sem gyðingar höfðu keypt af íbúum þessa tyrkjaveldis allar götur frá því um miðja 19. öldina og næstu 100 árin fram að því sem Sameinuðu þjóðirnar ákváðu landamærin hjá Ísrael og samþykktu stofnun ríkisins.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.7.2014 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Lísa Baldursdóttir
Anna Lísa Baldursdóttir
Móðir, kona, meyja. Misjöfn og mislynd, margreynd og málgefin. Menntuð en ómenningarleg á stundum. Ekki endilega í þessari röð.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband